Skráning enn opin í lokasmiðju sumarsins hjá Menningarstofu
01.07.2025
Menningarstofa Fjarðabyggðar býður upp á fjórar spennandi listasmiðjur fyrir börn yfir sumarið og er skráning enn opin í lokasmiðju sumarsins.
Menningarstofa Fjarðabyggðar býður upp á fjórar spennandi listasmiðjur fyrir börn yfir sumarið og er skráning enn opin í lokasmiðju sumarsins.
Míla, í samstarfi við Fjarðabyggð, hefur á síðustu mánuðum unnið að lagningu ljósleiðara í Fjarðabyggð. Fyrsti áfangi er unninn á þessu ári og miðar að því að tengja öll fyrirtæki og heimili á Breiðdalsvík, Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og í Neskaupstað við ljósleiðarakerfi Mílu. Verkið hefur unnist hraðar en áætlanir gerðu ráð fyrir og hefur samvinna við íbúa verið til fyrirmyndar. Verktakar Mílu, VVverk og Rafey, hafa staðið sig með prýði.
Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, hafa undirritað viljayfirlýsingu vegna nýs rannsóknaseturs Háskóla Íslands sem staðsett verður á Eskifirði. Um er að ræða fyrsta rannsóknarsetur Háskóla Íslands á sviði menntavísinda.
Hátíðahöld Fjarðabyggðar vegna 17. júní á Breiðdal voru vel sótt og afar vel heppnuð. Skipulag dagskrárinnar í ár var í höndum Ungmennafélagsins Hrafnkels Freysgoða.
Frítt verður inn á safnið og boðið upp á súkkulaðiköku. Þá leiðir Þóroddur Helgason sögugöngu um bæinn, Gauti Páll sagnfræðingur segir frá Íslendingum sem létust af völdum hersins og fulltrúar bæjarins segja frá komandi framkvæmdum á húsnæði safnsins.
17. júní verður fagnað á Breiðdal með frábærri hátíðardagskrá fyrir alla fjölskylduna. Dagskráin fer fram við Frystihússalinn
Sjómannadagurinn er sunnudaginn 1. júní og honum verður fagnað með fjölbreyttum hætti í Neskaupstað, Eskifirði og Fáskrúðsfirði um helgina. Dagskráin hefst í Neskaupstað á miðvikudaginn og fimmtudaginn á Eskifirði. Boðið verður upp á siglingar, skemmtidagskrár, dorgveiðikeppni og margt fleira.
Rafmagnslaust verður í hluta Stöðvarfjarðar þann 3.7.2025 frá kl 23:59 til kl 6:00 4.7.2025 vegna vinnu við dreifikerfið. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar.
Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 5289000. Kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof
Fjarðabyggð kynnir lýsingu og tillögu á vinnslustigi vegna breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040. Um er að ræða breytt skipulagsákvæði á reit AT-301 vestan miðbæjar á Reyðarfirði. Með breytingunni er veitt takmörkuð heimild fyrir íbúðir og þjónustu á þeim hluta reitsins sem er austan Leiruvogs og norðan Nesbrautar.
Rafmagnslaust er á Seyðisfirði og nágrenni og Mjóafirði. Verið er að koma rafmagni á aftur.
Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528-9000.
Kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof