Forsíða Veðurstofu Íslands

Veðurspá

Allt landið
Horfur næsta sólarhringinn

Suðaustan 10-18 m/s og rigning sunnan- og vestanlands, hvassast vestast. Mun hægari vindur og bjart norðaustantil, en þykknar upp í kvöld. Hiti 10 til 22 stig, hlýjast norðaustanlands.
Suðlæg átt, 10-15 og rigning austantil á morgun, talsverð úrkoma á Suðausturlandi, en annars suðvestan 5-10 og stöku skúr.
Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Norðurlandi.

Veðurspá gerð 22.05.2025 15:21

Athugasemd veðurfræðings

Búast má við hvössum sunnavindstrengjum á Snæfellsnesi og við Esju í dag. Slíkt vindar geta verið varasamir ökutækjum, sem viðkvæm eru fyrir vindum.
Skrifað af vakthafandi veðurfræðingi 22.05.2025 15:21

Úrkomuspá Hitaspá Vindaspá

Myndin barst ekki til vefþjóns.

Reykjavík

10°
10  

Bolungarvík

11°
2  

Akureyri

18°
7  

Egilsstaðaflugv.

19°
4  

Kirkjubæjarkl.

11°
6  

Allt Ísland

Fréttir

Áframhaldandi landris í Svartsengi - 20.5.2025

Uppfært 20. maí

Áframhaldandi landris mælist í Svartsengi, sem bendir til áframhaldandi kvikusöfnunar á svæðinu.  Ef hraði landrissins helst svipaður og hann hefur verið undanfarnar vikur, má ætla að líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi fari að aukast þegar líða fer á haustið. Breytingar á hraða landriss, og þar með kvikusöfnunar undir Svartsengi, geta þó haft áhrif á þetta mat. 


Lesa meira

Tíðarfar í apríl 2025 - 2.5.2025

Apríl var óvenjulega hlýr á landinu öllu, sérstaklega fyrstu tíu dagar mánaðarins. Á landsvísu var þetta 5. hlýjasti aprílmánuður frá upphafi mælinga. Tíð var góð, það var hægviðrasamt og tiltölulega þurrt um stóran hluta landsins. Gróður tók vel við sér.

Lesa meira

ICEWATER verkefnið hafið - 9.4.2025

Um 80 manns tóku þátt á fyrsta fundi í ICEWATERverkefninu, sem haldinn var dagana 24. og 25. mars 2025 í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur í Elliðaárdalnum í Reykjavík. Fundurinn markaði upphaf þessa metnaðarfulla verkefnis, sem miðar að því að flýta fyrir og bæta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi.

Lesa meira

Landris heldur áfram í Svartsengi - 8.4.2025

Uppfært 8. apríl kl. 15:10

Aflögunargögn sýna skýrt merki um að landris haldi áfram undir Svartsengi. Landris mælist nú hraðara en eftir síðustu eldgos. Það gæti skýrst af því hversu mikið rúmmál kviku fór úr kerfinu í þessum síðasta atburði.

Hins vegar er enn of snemmt að segja til um áframhaldandi þróun á hraða kvikusöfnunarinnar. Reynsla frá fyrri atburðum sýnir þó að hraði kvikusöfnunar minnkar yfirleitt eftir því sem líður á kvikusöfnunartímabilið milli gosa. Bíða þarf í allavega viku, mögulega nokkrar vikur, til að segja til um hvort og þá hversu mikið hraði kvikusöfnunar mun breytast.

Lesa meira

Bætt þjónusta Veðurstofu Íslands við útvarpshlustendur - 3.4.2025

Þann 1. apríl 2025 voru gerðar smávægilegar en gagnlegar breytingar á útvarpslestri veðurfrétta frá Veðurstofu Íslands á RÁS 1. Tímasetningar veðurfregna haldast óbreyttar, en innihaldið hefur verið tilsniðið til að veita hlustendum betri og markvissari þjónustu.

Lesa meira

Tíðarfar í mars 2025 - 3.4.2025

Mars var hlýr og hægviðrasamur um allt land. Úrkomulítið var norðaustanlands en úrkomusamara á vestanverðu landinu. Nokkuð sólríkt var bæði í Reykjavík og á Akureyri. Hvassviðri í upphafi og lok mánaðar ollu vandræðum. Veðrinu þ. 3. og 4. fylgdu sjávarflóð á suðvesturhorni landsins, en þ.30 varð mikið þrumuveður á sunnanverðu landinu.

Lesa meira

Eldri fréttir

RSS

Fróðleikur

Glitský 1. febrúar 2008

Glitský

Nokkur glitský sáust vel á austurhimni frá höfuðborgarsvæðinu að morgni 1. febrúar 2008.

Lesa meira
 

Fleiri greinar um skylt efni


Útgáfa og rannsóknir

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica
Á þessum vef eru vafrakökur notaðar við nafnlausar notkunarmælingar, en engin virkni tengist markaðssetningu. Sjá nánar